Sunday, November 07, 2004

Ergelsi

Ó bloggið mitt blíða
því bregðstu mér nú?...

Þetta er þriðja tilraun mín til að skrifa eitthvað.
Alltaf kemur einhver leiðindar villumelding og allt fer, hverfur, kabússs!

Ætla núna að sýna hvað ég er fljót að læra af reynslunni, og skrifa lítið...og reyna að senda það. Athuga svo hvað gerist.

Var annars búin að skrifa tvö, hreint snilldar, blogg.
Sem nú svífa heimilislaus um símalínur alheimsins. Or not....

Ef þetta virkar ekki núna, fer ég í fýlu og skríð upp í rúm!

Till next...adios

4 comments:

Nonni said...

Ég þekki ergelsið. Var einu sinni búinn að eiða tveimur tímum í að skrifa ferðasögu þegar ég var í Suður Ameríku þegar ég rak mig í einhvern takka og vúss...allt horfið.

Lifur said...

Man eftir að þú sagðir mér það Jón og ég er enn að prísa mig sælan

Sigga Lára said...

Fór að bregðast við þess lags hörmungum einhvern tíma með því að skrifa langar færslur fyrst inn í textaskjöl og peista þær svo. Svona þegar nokkrar hálfpólitískar dómsdaxpredikanir höfðu horfið sporlaust, mér til mikillar armæðu.

Sigga Lára said...

Til hamingju með ammælið! Kjeeeelling. Sjáumst á eftir.