Saturday, February 02, 2008

Ekkert fyndið

Já það er alveg hætt að vera fyndið hvað það snjóar mikið! Það bara snjóar og snjóar og snjóar svo meira, og mig óar alveg við þessu!
Annars lítið við þessu að gera. Vona bara að ég nái bílnum upp fyrir vorið ;) Svo eru bara allir með hor og hósta...usss ekki gott ástand.
Veit ekki afhverju ég settist hér niður fyrir framan tölvuna, á eftir að gera helling af almennum heimilisstörfum, vaska upp, þvo þvott og fleira skemmtilegt. Best að drífa í því meðan ég man ;)

Till next...adios

2 comments:

Anonymous said...

Þú gætir líka bara flutt nær mér og farið í fjarnám, losnar við kuldann og þennan gaur sem fer í taugarnar á þér :) alltaf gott að slá margar í einu höggi júnó

Anonymous said...

Já snjór er bestur á póstkortum og sem jólaábreiða á aðfangadag...
Til hamingju með litla frænda og knús knús á ykkur þarna á norðurlandinu...Hvernig gengur í Freyvangi?
Halla