Tuesday, May 06, 2008

Sex af sex :)

Einhvernvegin svona leið mér eftir síðasta prófið í gær:
En ég náðist ekki á mynd og fékk því þessa lánaða, enda Mikael mun skemmtilegra myndefni en ég ;)
Já, það er gaman að vera búin í prófum, en nú byrjar taugastríð nr.2...að bíða eftir einkununum og einhvernvegin hef ég það á tilfinningunni að ég gæti þurft að bíða slatta. Svo það er gott að hafa nóg að gera ;)
Hélt upp á próflokin í gær með þvi að byrja á að fara og láta skipta um dekk á bílnum, svo nú er hann kominn á sumartúttur. Svo fór ég í sveitina og reyndi að gera eitthvað gagn :)
En um kvöldið var náttúrulega aðaldjammið, en þá hittist bekkurinn minn heima hjá einni og þar var grill og öl að vild...alger snilld :) Var samt eitthvað svo þreytt og át svo hryllilega mikið yfir mig að ég fór bara heim fyrir miðnætti, en þetta var rosa gaman og frábært að vera í svona samheldnum og skemmtilegum bekk :)
Ég er samt ekki ennþá alveg að átta mig á því að skólinn sé búinn, prófin búin og ég búin með heilt ár af háskólanámi...kanski nokkrir dagar þangað til að fattarinn fer alveg í gang.

Till next...adios

5 comments:

Anonymous said...

Til hamingju með að vera búin í prófunum:-) Efast ekki um að þú nærð þeim öllum með glans.

Anonymous said...

Innilega til hamingju með próflokin snúlludúllan mín!!

Adda said...

Innilega til hamingju með að vera búin.. Ég verð búin á föstudag og ég hlakka SVO mikið til. Pabbi kemur suður á laugardag með hundana mína og draslið mitt.
Elóó ég er að koma heim :D Gleði gleði ;)

En annars þá eruð þú og Sara svona svipaðar. Stressaðar eftir prófin að bíða eftir einkunnunum og svo fáið þið amk 7 í prófunum sem þið voruð VISSAR um að þið væruð fallnar í... Bjána fólk.... ;) Hehe

En knúsaðu þennan sæta strák þarna frá mér og Kristján líka, er alveg vissum að Esra verði glaður að fá knús frá mér ;)

Adda said...

Voðalega skrifa ég alltaf mest... hmm... Kannski hrjáir mig undarlegur sjúkdómur að nafni ritræpa, pæling ;) Skemmtu þér vel í sauðburðinum, hlakka til að komast í smáá sauðburð eftir tvær vikur, svona rétt að ná endanum á honum ;)
Sko bara.. Farin að skrifa aftur... Jæja farin að læra.

Best Regards,
Ms. Johannesdottir

Anonymous said...

Til hamingju með að vera búin í prófunum Eló mín. Auðvitað nærðu öllu þessu öllu saman;)