Monday, May 19, 2008

Silast...

...inn einkunnir, var að fá eina í dag, fékk 8 í siðfræði og álitamál :) bara mjög ánægð með það, enda líka bara 2 sem voru hærri en ég...og það er alltaf ennþá skemmtilegra að vera nálægt toppnum :) Þið verðið bara að umbera montið í mér örlítið...hehe.
Annars lítið að frétta, maður er að komast í Eurovisíon fíling, samt spurning hvort maður verður ekki búin að fá alveg nóg eftir 3 kvöld!!! En maður horfir amk á þegar Ísland er í undanúrslitum...svo fer lokakvöldið eftir því hvort við komumst áfram, hvort maður horfir með báðum eða bara með öðru og drekkur bara þess mun meira ;) hehe...
Jæja, þetta verður bara að vera stutt núna, ætla að elda kvöldmat og drífa mig í bíó...jammm, tekin var sú drasstíska ákvörðun að skella sér á Iron Man! Framhald í næsta bloggi...;)

Till next...adios

2 comments:

Anonymous said...

Ég spái okkur 16. sæti:)

Anonymous said...

Til hamingju með áttuna:-) Endilega haltu áfram að monta þig! Ég er ekki síður spennt en þú yfir einkunum þínum. Vissi auðvitað að þú myndir taka þetta með annarri;-)Hér förum við í júróvisjóngír og veðjum. Ætli Gústa vinni ekki veðmálin eins og venjulega!!! Kv.