Friday, March 07, 2008

Brandari dagsins

Sporðdreki: Lífið hefur mikinn tilgang núna, þar sem viss manneskja spilar stóra rullu. Hún ríkir yfir þér og afgangurinn af heiminum fellur inn í dauflegan bakgrunninn.

Þetta var í stjörnuspá dagsins á mbl.is held þetta ætti frekar að heita brandari dagsins. Í þessi skipti sem ég rek augun í stjörnuspána er hún alveg út úr kú...og þar sem ég er líka að læra gagnrýna hugsun, þá er ég auðvitað alveg hætt að trúa á svona bull eins og stjörnuspár, forspár og hrakspár...húmbúkk! ;)
Annars er ég löt í dag, nenni ekki að skrifa eða læra, ætla nú samt með strákana í Freyvangsleikhúsið og leyfa þeim að sjá Þið munið hann Jörund :) það verður nú gaman að sjá það í annað skiptið ;) Endilega drífa sig í leikhús everyone :) Ætla að athuga hvort sófinn sé ennþá mjúkur...

Till next...adios

1 comment:

Anonymous said...

Sko Eló mín. Þú fattar ekki alveg fídusinn í þessu.
Þetta virkar fyrir þá sem trúa þessu, hehe... Skilurðu það sem ég á við;)