Friday, April 26, 2013

Hvað er til ráða?



Stundum er erfitt að vera með haus sem er haldinn síhugsunaráráttu.
 Í veikri von um að losa mig við eða létta smá á hugsanaþunganum, þá ætla ég að reyna að skrifa mig örlítið frá þessu.

Núna sækja að mér hugsanir um; hvað það gæti hugsanlega verið sem fær börn til að vera leiðinleg við hvort annað? Þá meina ég bæði í orði,  með gjörðum og skrifuðum athugasemdum á netinu (facebook, youtube).

Ég fór á afar fróðlega Maríta fræðslu um daginn, en þar er verið að fá börn í 5.-6. bekk til að hugsa áður en þau byrja á neyslu áfengis eða annarra vímuefna og helst auðvitað sleppa því. Fyrst var talað við börnin með foreldrum/forráðamönnum, sýnd mynd og svo rætt aðeins um almennt heilbrigði. Ein glæran sýndi magn sykurs í drykkjum, og einnig var komið inn á sætuefni. Fyrirlesarinn sagði þá að venjulegur sykur væri þó skömminni skárri en gerifsæta. Þá heyrðist mótmæli frá einu foreldri (þarna voru börnin enn með) með þeim athugasemdum hvort það væri eitthvað sannað. Eftir smá þref milli fyrirlesara og foreldris, þá tók fyrirlesari af skarið og sagði að fyrir því væru staðreyndir og lýðheilsustöð varaði við neyslu gerfisætu í miklu magni.


Stuttu seinna fóru börnin í aðra stofu, þar sem rætt var við þau þar, en foreldrar/forráðamenn sátu áfram og hlýddu á áframhaldandi hættur vímuefna og allskonar ofbeldis í tölvuleikjum og á netinu. Þar fór aftur af stað umræða um sykur og gerfisætu (hver vill líka missa barnið sitt í massífa sykur- eða gerfisætuneyslu) sem endaði með því að áðurnefnda foreldri og fyrirlesari sættust á að vera ósammála um það mál.
 Svo voru sýndar myndir af hálfberu kvenfólki í auglýsingum og myndböndum. Ein myndin var t.d af konu í bikini, standandi í miðri á að renna fyrir laxi. Viðbrögðin voru nánast blístur og athugasemdir frá karlmönnum á þessa leið: „nú sér maður loksins hvað er spennandi við laxveiðar“.

Þótt að þetta hér á undan komi kannski ekki umhugsunarefni mínu (sem ég minntist á í upphafi) beinlínsi við, þá er það jú kannski lykillinn. Hvernig fyrirmyndir eru við? Og þá á ég ekki bara við hvaða fyrirmyndir erum við eigin börnum heldur almennt. En þó SÉRSTAKLEGA hvernig högum við okkur heimavið og þegar við erum með börnin okkar á almennum svæðum?

Þarna var t.d þetta foreldri/forráðamaður sem mótmælti fyrirlesaranum, að draga orð hans í efa, og þá ekki bara orð hans um gerfisætu, heldur allt sem hann var búinn að segja áður. Hafði hann eitthvað vit á vímuefnaleyslu og annari hættu ef hann hafði ekki einu sinni vit á sykri? Sem 11 ára barn er auðvelt að draga svoleiðis ályktanir.
Þeir karlmenn sem blístra og eru með vafasamar athugasemdir um klæðaleysi kvenna, á fyrirlestri sem er innan veggja skóla barnsins þeirra, hvernig eru þeir þegar vinirnir koma saman að horfa á fótbolta? Hvað segja þeir í auglýsingatímanum þegar svakaleg skvísa kemur labbandi uppúr sundlaug í bikiní (sem varla sést) haldandi á coca cola eða pepsi flösku? Hvar eru eyru barnanna okkar? 


Ég lendi oft í því að ég er að tala við einhvern fullorðin, og nálæg barnaeyru eru kyrfilega falin undir heyrnartólum og að manni finnst á hæsta styrk, eða eru jafnvel staðsett í næsta herbergi en samt fær maður allt í einu spurningu út í það sem um var rætt. Börn eru nefnilega þeim eiginleika gædd að hafa öll skynfæri opin og meðtaka allt sem gerist í kringum þau, jafnvel þótt maður treysti því að þau séu hálf meðvitundarlaus af tölvuleikjanotkunn.


Eitt annað stakk mig líka í þessari „fullorðins“ umræðu eftir fyrirlesturinn, en það var að sumum foreldrum fannst það mætti leggja MEIRI áherslu á að kenna börnunum að drekka heldur en að banna þeim það alveg. Því þau myndu hvort sem er drekka einhvern daginn. 

Mér finnst þetta álíka gáfulegt og að kenna barninu sínu að dópa, því það prófar það hvort sem er einhverntíman. Ég held að það detti fáum í hug að segja við barnið sitt: „mundu svo bara að reykja eina hasspípu á dag, eða taka bara eina LSD töflu í hverju partíi“. Við þurfum nefnilega að gera okkur grein fyrir því að þegar börn (og þá meina ég undir 20 ára aldri) eru byrjuð að nota áfengi, þá aukast líkurnar á að þau prófi eitthvað annað. 
Það er því miður svo að allt sem kalla má heilbrigða skynsemi hverfur eins og dögg fyrir sólu þegar áfengisneysla er annars vegar. Þess vegna myndi ég telja vænlegra að hvetja börn til að láta áfengi eiga sig, fremur en að kenna þeim að nota það „rétt“. Og með því að kenna þeim að nota áfengi, þá erum við að segja þeim að þetta sé eðlilegur hluti af lífinu, og eru þá þau sem ekki drekka ekki eðlileg?


Mig langar að hvetja alla foreldra/forráðamenn til að ræða við börnin sín um samskipti, kurteisi og tillitssemi. Koma fram við hvert annað eins og þau vilja láta koma fram við sig. Segja ekkert við aðra sem þau ekki vilja láta segja við sig. Þetta þarf ekkert að vera svo flókið. Hvernig komment eru líka börn að lesa á netmiðlum sem að fólk sem telja á fullorðið lætur frá sér?

Svona í lokin ætla ég að láta fljóta með þá athugasemd sem ég fékk á myndband á youtbue, en þar er sonur minn sem þá var fjögurra ára að syngja lag. Og þetta fannst einum 11 ára viðeigandi að setja inn sem komment: „hann syngur ógeðslega kann ekkert að sínga og kann ekki á fokkíng gítar littli homma hóru-úngi þinn :D“
Þetta var nú svona aðal vakinn að þessum pistli mínum sem ég læt nú lokið í bili.

Till next...adios

2 comments:

Helga Ág. said...


Þetta - þ.e. hegðun foreldra og hvernig þeir eru innréttaðir, hvaða boðskap þeir bera og sýna með hegðun sinni ER MÁLIÐ. ég hef staðið í óvopnuðum styrjöldum við boðskap foreldra sem eru bara að reyna að vera töff, eins og krakkar, standa uppí í harinu á öllum leiðbeinendum og predika fyrirlitningu á þeim sem reyna að kenna "hagnýta hegðun í samgfélagi mannanna". Og börnin? hvernig koma þau út úr þessu? Hræðilega illa. Það er þyngra en tárum taki að að horfa á og REYNA af veikum mætti að benda á aðrar lausnir en töffaragang og að vera bara nógu kjaftfor. -
Þettea er að vísu rangan á minnimáttarkenndinni en það breytir engu. Sakðinn í samfélaginu er verulegur - af hálfu foreldra af þessari gerð. Það eru ekki bara til óuppdregin börn og unglingar - það eru líka til þannig foreldrar. Og hvaðan ætli þeir komi nú?

Sigga Lára said...

Ég hef orðið vör við eina mjög ánægjulega þróun síðan ég fór að kenna í menntaskóla. Núna eru það nefnilega bara alveg heilmargir sem ekki drekka. Og

það er samfélagslega samþykkt!

(Þeir örfáu sem ekki drukku áfengi þegar ég var í þessum sama skóla voru eineltir undir drep og við litum einstaklega niður á þá.)

Þannig var til dæmis haldið leikfélagspartí í sumarbústað og eiginlega allir menntaskólakrakkarnir ætluðu að vera á bíl. Það var aðallega fullorðna fólkið sem var að drekka áfengi.

Þetta finnst mér rosalega gleðileg þróun, en hún setur líka þá ábyrgð á okkar herðar að halda nú ekki að þeim okkar úrelda misskilningi, að ALLIR drekki. :)