Saturday, January 12, 2008

Ææ mig aumar...og leiðrétting

Best að byrja á því að leiðrétta smá villu síðan í gær, miðillinn sem ég er orðinn blaðamaður hjá er inn á slóðinni: http://landpostur.is sem sagt ekki með greini eins og ég skrifaði greinilega í gær...
Ég hef aðeins þá afsökun að ég hlýt að hafa verið að byrja að verða veik þegar ég skrifaði þetta...það heltist nefnilega yfir mig lasleiki í gærkveldi, næstum því bara allt í einu. Kanski komin með pestina sem Kristján fékk fyrir jól, ég var bara svo lengi að fatta að hann smitaði mig ;/
Annars er þetta óþverra pest, hræðilegur hausverkur, hræðileg hálsbólga, hræðilegir beinverkir og sfrv. mér er bara alls staðar illt ! Svo er heldur ekki mikill friður til að fá að vera veikur í friði hér á þessu heimili. Skæl skæl...ætla að skríða aftur í rúmið.

Till next...adios

1 comment:

Hanna Stef said...

Sæl vertu sjúka kona. Vona að þú náir þessu úr þér fljótlega. Til hamingju með ritgerðareinkunina, bara stórglæsilegt. Ég bíð spennt eftir einkunnabirtingunni:-)Smá komment við fyrri færslu: þú ræður engu ef þú verður forseti - en færð hins vegar fínustu laun!!! Svo nú er bara að byrja að safna undirskriftum fyrir tilvonandi framboð!! Kv.