Wednesday, January 07, 2009

Spá

Rakst á stjörnuspána á Mbl.is og fanst hún voða mikið ég:

Sporðdreki: Það getur reynst þér skeinuhætt að hlaupa í blindni eftir athugasemdum annarra. Leyfðu málum að hafa sinn gang og njóttu lífsins með bros á vör.


Ákvað að henda þessu hér inn svona í tilefni dagsins eða eitthvað ;)

Skólinn byrjar á morgun, verð í 16 einingum, þótt ég hafi verið búin að lofa mér að taka ekki meira en 15 ein. á þessari önn...en þar sem að ég gat ekki valið einn 3 ein áfanga sem mig langaði að taka...vegna árekstra...þá varð ég að velja tvo 2 ein áfanga í staðin...

Ég er svona nokkurnvegin að verða búin að berja gólfið í Kristjáns herbergi sundur og saman...svo ég vonast til að geta þrifið og málað á morgun og skellt parketinu á um helgina :)
Þá á ég "bara" eftir að koma dótinu hans Kristjáns fyrir og þrífa restina af íbúðinni hátt og lágt, því blessaða rykið, sem kom þegar ég fræsti í gær og eyðilaggði ryksuguna, hefur náð að smjúga um allt og er alls staðar...En ég fer bara í ríkið, kaupi kassa af bjór og geri þetta líka um helgina ;) hehehe...

Alla mágkona ekki ennþá búin að eiga, allar líkur eru nú á því að Þórður bró fái bara barnið í afmælisgjöf þann 9.jan ;) Spennandi :)

Till next...adios

1 comment:

Anonymous said...

Það er nú aldeilis spennandi að fá lítið baby í afmælisgjöf... Spennandi að vita hvað gerist.
Gangi þér vel með herbergið um helgina og ekki gleyma þér yfir bjórkassanum!!!!