Thursday, August 28, 2008

My mind is clear ;)

Ég er búin að vera hálf heyrnarlaus í nærri tvær vikur (fyrst ég er hálf sjónlaus þá var þetta lítið að bögga mig) en ákvað loks að gera eitthvað í því í gær og skrapp til læknis. Í stuttu máli var hausinn á mér fullur af skít...eða eyrað af merg...og það var skolað út í snarhasti. Mér leið pínulítið eins og það væri verið að sprauta vatni lengst inn í hausinn á mér og núna er ég sum sé með hreinan huga...no dirty thougts now ;) reyndar var eyrað sem ég heyrði með líka fullt af merg, og sá mergur var svo pikk fastur að ég þarf að hella olíu í eyrað á mér til að losa eitthvað um það...og mæta svo aftur hjá góða lækninum í næstu viku. En þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig mínar hugsanir eru í dag...búið að smúla á mér heilann og með hausinn fullan af extra virgin ólífuolíu ;)

Strákarnir okkar mættu til landsins í gær, eins og sennilega allir vita, bein sjónvarpsútsending í 5 tíma var kanski aðeins ýkt, en svo sem allt í lagi, maður gat þá bara gert eitthvað gáfulegt á meðan. Annars er þjóðarstoltið alveg að sliga mann þessa dagana, það komu bara næstum tár þegar Óli forseti hnýtti stórriddarakrossinn um háls Óla heimspekings. Yfirmáta stórkostleg stund.
Ég gerði nú ekki beint fræðilega úttekt á því, en í fljótu bragði fanst mér eins og konur allra handboltakappanna væru ljóshærðar, og fór þá að hugsa um að konur flestra "frægra" kappa, t.d. íþróttamanna, Formúlu gauka og allsskonar dúdda, eru ljóshærðar! Og þar af leiðir að eina leiðin til þess að ná sér í "frægan" mann er að vera ljóshærð...
Endilega reynið nú að vera eitthvað ósammála þessum fræðum mínum ;)

Till next...adios

3 comments:

Anonymous said...

Tók líka eftir þessu með ljóshærðu konurnar. Ertu þá búin að lita hárið á þér ljóst? HE! HE! Fyrst hugsanir þínar eru hreinar eftir skolunina, verður þú þá hrein mey eftir alla extra VIRGIN olíuna sem þú hellir í hausinn á þér? Tek það fram fyrir þá sem ekki vita að ég er ekki ljóshærð þrátt fyrir þessar aula spurningar. Nú hljóta að koma viðbrögð!!! KV.

Anonymous said...

Victoria Beckham er ekki ljóshærð;)
Bara svona að minna á það!!!!

Anna Rósa said...

talandi um litað hár þá ættir þú að sjá hausinn á mér þessa dagana, aukaverkanir eftir segulómtækið segir eldhúsliðið......hahaha heyrumst