Friday, September 26, 2008

Lærdómur

Ég var búin að hugsa mér að sitja sveitt og læra í allan dag...svo uppgötvaði ég það að strákarnir áttu bara að eiga frí í dag, svo það er viðbúið að eitthvað verði minna úr verki en til stóð.
Ég skrapp í ræktina í gær, í 4 skiptið, já já, þið komist ekkert hjá því að lesa um ræktartímana mína...hehe...var svo sem tíðindalítið í ræktinni...engir sýniþarfargaurar í þetta skiptið.

Ég er annars voða andlaus eitthvað, var að koma úr búiðinni, er þreytt og nenni ekki að læra...sennilega vegna þessa að það liggur svo mikið fyrir að ég veit ekkert á hverju ég á að byrja!

Kanski ég lakki bara á mér neglurna og sjái svo til hvort ég fyllist ekki dugnaði og andagift ;)

Till next...adios

1 comment:

Anonymous said...

hæ stelpa gaman að hitta þig i gær og væri gaman að kynnast þér aftur kannski kaffið sem þú seigir að ég
þori ekki að koma i hahaha
kveðja gulli.ps er lika með msn gullims@hotmail.com