Tuesday, October 28, 2008

Ææææ

Akkúrat núna, þá finnst mér Íslenska ríkisstjórnin og ráðamenn vera aumingjar. Og ef þeir vilja lögsækja mig fyrir meinyrði, þá bara gott og vel.
Var að- lesa það inn á mbl.is eða visir.is að Færeyingar vilji lána okkur aur...eða einhverja milljarða. Mér finnst þetta óskup fallegt af færndum vorum Færeyingum, en um leið hugsaði ég: hvurslags djöfulisns aumingjaskapur og heimskuháttur kom okkur hinum venjulega Íslendingi, í þessa hrikalegu stöðu að við þurfum að fá lán hjá þjóð, sem nb. er ekki einu sinni fullvelda ;)
Mér finnst að ríkisstjórnin geti bara sagt af sér í hvelli og þjóðstjórn Færeyinga tekið við stjórninni...þeim viriðist amk ganga betur en okkur að stýra sínu skipi.
Ég er nú að reyna að hugsa ekki alltof mikið um þetta allt, svo sem nóg annað að hugsa um, en stundum verð ég bara alveg foxill yfir þessum drulluháleistum sem lögðu landi í rúst.
Þetta er bara eins og ef maki manns til fjölda ára, sem maður hefur treyst fyrir börnum, búi og fjármunum öllum, myndi bara berja mann í buff, nauðga og skilja eftir allslausan og nakin á öskuhaugunum!

Skamm Dabbi Odds
Skamm Geir H.H
Skamm ríkisstjórn
Skamm útrásaraumingjar

Já ég er bara fúl!
Það er alveg nógu erfitt að þurfa að búa á skítaköldu landi, með snjó og roki stæstan hluta ársins, þótt maður þurfi ekki að hokra upp á haugum líka!
Það verða engin knús og faðmlög til þess að bjarga málunum...
Eflaust verður runnin reiðin af mér eftir smá stund og ættjarðarástin kviknar á ný...en þangað til...skrambans!

Till next...adios

3 comments:

Sigga Lára said...

Já, ég er líka að finna fyrir vaxandi fýlu yfir þessu öllusaman. Ertu ekki bara með til Kanada eftir kosningar 2011?

Anonymous said...

Ditto

Elísabet Katrín said...

Ég fer bara að verða til í "hvert sem er" á allra næstu dögum bráðum ;)